Ertu í framkvæmdum?
Okkur þykir mikilvægt að vera í góðu sambandi við þá sem standa í framkvæmdum, hvort sem verið er að byggja hús, sinna viðhaldi eða grafa ofan í jörðina.
Á þessum síðum má finna upplýsingar fyrir húsbyggjendur um tengingar við hitaveitu-, rafveitu-, vatnsveitu- og fráveitukerfi okkar.
Algengasta orsök bilana í dreifikerfinu er sú að verktakar við jarðvegsframkvæmdir grafa í sundur rafstrengi eða vatnsæðar. Því er afar mikilvægt að fá hjá okkur teikningar af legu lagna áður en framkvæmdir hefjast. Með réttum vinnubrögðum má koma í veg fyrir tjón og óþægindi fyrir notendur.
Hafðu samband við okkur áður en þú stingur niður skóflu