Skammtímatenging rafmagns
Hægt er að fá skammtímatengingu á rafmagni fyrir tímabundna notkun t.d. fyrir sölubása, viðburði eða aðra tímabundna notkun. Þessi þjónusta er háð staðsetningu og aðstæðum í dreifikerfinu. Skammtímatenging afhendist við götuskáp eða dreifistöð í skáp sem notandi útvegar. Hámarkstími skammtímatengingar er 30 dagar.
Greitt er sérstaklega fyrir tengingu, aftengingu og notkun. Álag vegna vinnu utan dagvinnutíma er 55%. Upplýsingar um verð er að finna í verðskrá raforkudreifingar.
Ef óskað er eftir skammtímatengingu þá gildir eftirfarandi ferli:
- Fá löggiltan rafverktaka í verkið
- Sækja um "Skammtímatengingu" í heimlagnaumsókn á Mínum síðum
- Hvort heldur greiðandi eða rafvirki geta sent inn umsókn
- Tilgreina skal dagsetningar uppsetningar og niðurtöku - Rafverktaki sendir inn Þjónustubeiðni til Veitna í gegnum Mannvirkjastofnun
- Tengiliður upplýstur um afhendingartíma og áætlaðan kostnað
- Rafverktaki setur upp skáp með bilunarstraumsrofa, sjálfvörum og plássi fyrir raforkumæli (Veitur munu veita undanþágu frá mælingu til 5. júní 2020)
- Veitur tengja skammtímatenginu í samráði við rafverktaka
Afhendingartími er áætlaður 5 virkir dagar.